Notendaskilmálar
Síðast uppfært: 24. janúar 2026
Gildandi fyrir: Outro ehf., kt. 480126-2110, Súlunesi 20, 210 Garðabær (hér eftir nefnt „Outro", „við" eða „okkur").
Með því að skrá þig, haka við skilmála í skráningarferli, nota appið eða vefsíðuna outro.is, samþykkir þú þessa skilmála og inngengst samning við Outro ehf..
1. Um Outro
Outro er stafrænn bókunarvettvangur sem tengir listamenn og skipuleggjendur. Þjónustan nær m.a. yfir:
- leit og birtingu listamanna
- samskipti og tilboð
- bókanir
- umsagnir
- greiðslumiðlun
- persónulegar kveðjur
Outro er einungis milliliður og ber ekki ábyrgð á framkvæmd viðburða eða gæðum þjónustu.
2. Notkunarskilyrði
Notendur skulu:
- vera 18 ára eða eldri
- veita réttar upplýsingar
- ekki nota vettvanginn í ólöglegum tilgangi
Outro getur lokað aðgangi við brot.
3. Þjónustan og hlutverk notenda
Skipuleggjandi getur:
- Sent fyrirspurnir
- Samþykkt tilboð
- Greitt í gegnum Outro
Listamaður getur:
- Sent tilboð
- Samþykkt bókanir
- Afhent kveðjur
Outro:
- Veitir tæknivettvang
- Heldur utan um greiðslur í gegnum Rapyd
- Sér um útborganir
4. Greiðsluferli
4.1 Viðburðir („Gigg“)
Greiðslur fara í gegnum Rapyd eða kröfu í heimabanka.
> 10 dagar fyrir viðburð
Skipuleggjandi velur á greiðslusíðu:
- Innborgun (20%) með korti eða kröfu — lokagreiðsla (80%) er þá alltaf krafa í heimabanka, búin til strax með gjalddaga 10 dögum fyrir viðburð.
- Greiða allt strax (100%) með korti eða kröfu.
3-10 dagar fyrir viðburð
Greiðist 100% af heildarupphæð strax með korti eða kröfu.
0-2 dagar fyrir viðburð
Greiðist 100% af heildarupphæð strax og aðeins með korti.
Staðfesting bókunar
- Ef skipuleggjandi velur kröfu staðfestist bókun ekki fyrr en greiðsla berst.
- Ef skipuleggjandi velur kort og greiðsla tekst staðfestist bókun strax.
Greiðslufall / vanskil
- Ef krafa er ógreidd þegar gjalddagi rennur út fær skipuleggjandi allt að 3 daga til að ganga frá greiðslu, þó aldrei lengur en þar til viðburður hefst.
- Niðurfellingartími miðast við fyrra tímamarkið af gjalddaga plús 3 dögum eða upphafstíma viðburðar.
- Ef greiðsla hefur ekki borist innan þess frests fellur bókun sjálfkrafa niður og getur aldrei verið virk eftir að viðburður hefst.
4.2 Persónulegar kveðjur
- Greitt er 100% við pöntun með kortagreiðslu (Rapyd).
- Greiðsla er geymd þar til afhending hefur verið staðfest.
5. Þóknun Outro
Outro tekur:
- 10% af giggum
- 20% af kveðjum
Þóknun Outro er dregin sjálfvirkt af bókunargjaldi áður en greiðslu er ráðstafað til listamanns. Um skiptingu greiðslna og endurgreiðslna við afbókun, vanefndir eða aðrar endurgreiðslur fer samkvæmt 6. lið skilmála þessara.
6. Endurgreiðslur og afbókanir
6.1 Ef SKIPULEGGJANDI hættir við – Gigg
> 14 dagar í viðburð
- Deposit endurgreitt (100%)
7–14 dagar
Deposit ekki endurgreitt. Deposit skiptist:
- 50% til listamanns
- 50% til Outro
3–7 dagar
Heildarupphæð skiptist:
- 50% endurgreitt til skipuleggjanda
- 40% til listamanns
- 10% til Outro
< 3 dagar
Engin endurgreiðsla. Skipting:
- 90% listamaður
- 10% Outro
6.2 Ef LISTAMAÐUR hættir við eða mætir ekki (no-show)
- Alltaf 100% endurgreiðsla til skipuleggjanda
- Listamaður fær enga greiðslu
- Outro ber allan kostnað vegna færslugjalda við endurgreiðsluna
- Listamaður fær viðvörun í kerfinu ef á við
6.3 Óviðráðanleg atvik (Force Majeure)
Ef viðburður getur ekki farið fram vegna:
- veðurs
- öryggisaðstæðna
- dauðsfalls
- Fyrsta úrræði er alltaf að reyna að færa viðburð á nýja dagsetningu án kostnaðar.
- Ef ekki er hægt að finna nýja dagsetningu er málið metið sérstaklega með sanngirni að leiðarljósi.
6.4 Persónulegar kveðjur
Ef listamaður afhendir ekki kveðjuna innan þess tíma sem tilgreindur var við bókun, á kaupandi rétt á fullri endurgreiðslu. Afhentar kveðjur fást ekki endurgreiddar.
7. Útborganir
Viðburðir (Gigg)
- Greitt til listamanns 4-5 virkum dögum eftir viðburð
Persónulegar kveðjur
- Greitt 4-5 virkum dögum eftir staðfesta afhendingu
8. Umsagnir
Outro getur fjarlægt umsagnir sem eru rangar eða brjóta lög/skilmála.
9. Samskipti og hegðun
Greiðslur utan kerfis eru óheimilar.
10. Skilaboðaeftirlit
Outro áskilur sér rétt til að fylgjast með, skoða eða vinna úr skilaboðum sem eru send innan vettvangsins til að tryggja öryggi notenda og koma í veg fyrir brot á skilmálum, þar á meðal tilraunir notenda til að forðast þjónustugjöld Outro eða semja um greiðslur utan kerfis.
Slík vinnsla getur verið sjálfvirk eða handvirk ef grunur vaknar um brot. Skilaboð eru ekki deild með þriðja aðila nema lög krefjist.
11. Höfundarréttur
Listamaður heldur höfundarrétti að efni sínu.
12. Ábyrgðartakmörkun
Outro er tæknilegur milliliður.
13. Breytingar
Outro getur uppfært skilmála hvenær sem er.
14. Lög og varnarþing
Íslensk lög. Héraðsdómur Reykjavíkur.
15. Hafðu samband
Outro ehf.
Netfang: outro@outro.is
Kennitala: 480126-2110
Heimilisfang: Súlunesi 20, 210 Garðabær
Sími: +354 852 1414