Persónuverndarstefna Outro ehf.
Síðast uppfært: 22. desember 2025
Outro ehf., kt. 480126-2110, Súlunesi 20, 210 Garðabær, ber ábyrgð á þeirri persónuupplýsingavinnslu sem fer fram í gegnum outro.is og þar tengd forrit.
Outro vinnur persónuupplýsingar notenda í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (GDPR).
1. Hvaða gögn eru söfnuð?
Outro safnar eftirfarandi gögnum:
- Nafn, netfang, símanúmer
- Skráningargögn (notendanafn, lykilorð, aðgangsheimildir)
- Bókunarsaga, samskipti og samningssögu
- Greiðslugögn (geymd í gegnum örugga þjónustu á borð við Rapyd)
- Mat, umsagnir og vefnotkun (síðuflettingar, leitarsaga, tækniuppl.)
Outro söfnar EKKI viðkvæmum persónuupplýsingum nema þú gefir því skýrt leyfi (t.d. ef veitt eru heilsutengd atriði í texta).
2. Hvernig eru gögn notuð?
Gögn eru notuð til:
- Þjónustureksturs og aðgangsstýringar
- Vinnslu bókana og samninga
- Samskipta (tilkynningar, póstar, kvittanir)
- Öryggis, varna á misnotkun og svikum
- Greiningar og vöruþróunar (með öryggisvæddum gögnum)
3. Lagagrundvöllur
Outro vinnur gögn á grundvelli:
- Samnings (skilmálar)
- Lagaákvæða (t.d. reikningsskil, peningaþvætti)
- Samþykkis (ef þarf er, t.d. markpóstur)
4. Þriðju aðilar
Gögn geta verið deild:
- Með Rapyd (greiðsluvinnsla)
- Með Mailchimp eða sambærilegu (markpóstur ef samþykktur)
- Með þjónustuaðilum (hóstun, kerfisstýring)
Allir þriðju aðilar vinna gögn skv. vinnslusamningi og öryggisskilmálum sem samræmast GDPR.
5. Geymslutími
- Skráningargögn: á meðan notandi er virkur
- Bókunarsaga: lágmark 4 ár í samræmi við reikningsskilalög
- Greiðslugögn: geymd af Rapyd skv. þeirra reglum
6. Réttindi notenda
Þú hefur eftirfarandi réttindi:
- Aðgang að eigin gögnum
- Leiðréttingu rangra uppl.
- Eyðingu (með fyrirvara um lagaskyldu)
- Flutning á gögnum
- Andmæli gegn notkun í markaðstilgangi
Beina má fyrirspurnum til outro@outro.is eða skriflega á heimilisfang Outro ehf..
7. Öryggi
Outro tryggir:
- Örugga SSL dulkóðun
- Innskráningu með SMS-staðfestingarkóða eða OAuth (Google/Apple)
- Takmarkaðan aðgang starfsmanna
Ef við tökum eftir öryggisbresti á gögnum notenda verður því tilkynnt til Persónuverndar án tafar og eins fljótt og auðið er.
8. Vefkökur og greining
Outro notar vefkökur til:
- Auðkenningar (t.d. innskráning)
- Greiningar á hegðun notenda (Google Analytics)
- Endurmarkaðssetningu (Meta, Google Ads)
Notendur geta stjórnað vefkökum í stillingum vafra síns.
9. Breytingar og fyrirspurnir
Outro getur uppfært persónuverndarstefnu eftir þörfum. Breytingar verða birtar á outro.is og gerðar áberandi.
Fyrirspurnir á að senda á outro@outro.is
10. Eftirlit
Outro starfar undir eftirliti Persónuverndar (www.personuvernd.is) og notar ávallt öruggustu vinnsluaðferðir í samræmi við EES-reglur.